Á döfinni

<<  Febrúar 2012  >>
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
20212223242526
272829    

Ný umræða

Svar: Að hefja spjallið
Það er nú það Fara í umræðu
Að hefja spjallið
Hér er prufuspjall, þetta er í vinnslu Fara í umræðu
Vortónleikar

harmonikukvartettinn

Harmóníkukvartettinn í Reykjavík heldur vortónleika sína þann  23.mars næstkomandi kl.20 í Guðríðarkirkju í Grafarholti


Harmóníkukvartettinn í Reykjavík er samansettur úr nemendahópi Guðmundar Samúelssonar en hann skipa : Benedikt Kristján Magnússon, Flemming Viðar Valmundsson, Halldór Pétur Davíðsson og Jónas Ásgeir Ásgeirsson. Leikin verða verk eftir eftir: m.a. Pietro Frosini, Johann Sebastian Bach, Luiciano Fancelli,Curt Mahr, Gustav Kneip, Gioacchino Rossini ásamt fleiri góðkunnum meisturum. Þegar líður á tónleikanna stígur á stokk slagverkstrío, þar eru á ferðinni nemendur Péturs Grétarssonar, en þeir munu kynda undir suðræna stemningu þegar leikin verður í Brasilísk tónlist.
Aðangseyrir : kr.1.000,-

 

 
Frá stjórn Harmóníkuakademíunnar

Aðalfundur Akademíunnar var haldinn 7. nóvember s.l. Þar fóru fram venjuleg aðalfundarstörf svo sem:

 

Ritari las fundargerð síðasta fundar, formaður las skýrslu sína og gjaldkeri reikningana, sem fundurinn samþykkti.

Ein breyting var gerð á stjórninni, Gunnar Kvaran gaf ekki kost á sér í stöðu gjaldkera og voru honum þökkuð störf hans í þágu Akademíunnar á liðnum árum. Í hans stað var kosinn Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson, Höfn í Hornafirði, og var hann boðinn velkominn til starfa.

Umræður urðu miklar undir liðnum önnur mál um námskrána sem væntanleg er fyrir harmóníku án tónbassa(melodibassa), það að hægt sé að ljúka námi á hana með miðprófi, og flokkun hennar með rytmiskum hljóðfærum.

Einnig var rætt um nauðsyn þess, að hvetja og leiðbeina harmóníkukennurum til kennslu klassísks harmóníkuleiks á harmóníku með tónbassa (konverter). Sótt hefur verið um styrk til þess verks hjá Menntamálaráðuneytinu, sem haft hefur góð orð um að veita hann.

Nýir félagar voru boðnir hjartanlega velkomnir í félagsskapinn. Ánægjulegt er að ungu harmóníkuleikararnir eru að skrá sig í félagið og vonandi að láta sem fyrst að sér kveða í starfi þess.

Rætt var um þann draum formannsins að koma upp landsliði ungra harmóníkuleikara sem mynduðu saman hljómsveit til þátttöku í hljómsveitamótum heima og erlendis.

Einnig var rætt um að skipuleggja tónleika fyrir þau ungmenni sem lokið hafa miðprófi, seinnipart vetrar. Stjórnin telur það mjög mikilvægt að efla kynni og samstöðu meðal ungra harmóníkuleikara.

Fyrirspurn kom inn á aðalfundinn frá stjórn S.Í. H.U. um hvort kennarar hefðu áhuga á að mæta með nemendur sína til keppni í harmóníkuleik. Umræða fór fram um það, en engin formleg afstaða tekin til þess.

Í von um að árið 2010 verði ár mikilla framfara í harmóníkuleiknum, og ár margra spennandi viðburða.

 

Stjórn Harmóníkuakademíunnar á Íslandi.

Guðmundur Samúelsson formaður Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þorláksgeisla 23, 113 Reykjavík.

Reynir Jónasson ritari Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Akraseli 25, 109 Reykjavík.

Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson gjaldkeri  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Miðtúni 16, 780 Höfn, Hornafirði.